154. löggjafarþing — 97. fundur,  17. apr. 2024.

vantraust á ríkisstjórnina, þingrof og nýjar kosningar.

1038. mál
[22:38]
Horfa

Jóhann Páll Jóhannsson (Sf) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Það eru risastórar áskoranir sem blasa við íslensku samfélagi — risastór verkefni, bæði erfið verkefni og mjög spennandi verkefni. Þessi ríkisstjórn hefur margsýnt að henni er ekki treystandi til að taka á þeim. Hún er of sundruð. Hún er getulaus. Hún er verkstola, hún hefur margsýnt það. Ég vantreysti henni á hverjum einasta degi. Ég vantreysti henni þegar ég vakna á morgnana og þegar ég fer að sofa á kvöldin [Hlátur í þingsal.] en sef þó ágætlega nema þegar dóttir mín heldur fyrir mér vöku.

Það er staður og stund fyrir vantrauststillögu. Hér er fram komin vantrauststillaga og guð forði okkur frá því að fara að verja þessa ríkisstjórn vantrausti. Við í Samfylkingunni styðjum að sjálfsögðu þessa vantrauststillögu.