vantraust á ríkisstjórnina, þingrof og nýjar kosningar.
Virðulegur forseti. Það má vissulega færa rök fyrir því að ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur hafi fengið umboð í kosningunum 21. september 2021 þar sem þessi sáttmáli var saminn á átta vikum. En það sama verður ekki sagt um ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar. Hún fékk ekki umboð í síðustu kosningum, svo mikið er víst. Mig langar að vitna í orð hæstv. forsætisráðherra fyrir 13 árum, þegar hann lagði fram vantrauststillögu á ríkisstjórn, með leyfi forseta, og gera að mínum:
„Ríkisstjórnin hefur ekki stuðning fólksins í landinu. Hún forgangsraðar enda ekki í þágu Íslendinga. Hana skortir framtíðarsýn. Ríkisstjórnina skortir skilning á því að í mannauði þjóðarinnar felast verðmætin. Við þurfum að virkja kraftinn í fólkinu í þessu landi til þess að komast af stað, til þess að hefja nýja lífskjarasókn.“ (Forseti hringir.)
Hæstv. forsætisráðherra vitnaði líka í þáverandi forsætisráðherra sem var með vantrauststillögu fyrir 30 árum síðan, og voru þau orð eftirfarandi, (Forseti hringir.) með leyfi forseta:
„Þá traustu leiðsögn sem þjóðin þarf á að halda er þessi ríkisstjórn ófær um að veita vegna innbyrðis sundurlyndis og stefnuleysis við stjórn landsmálanna.“ — Og gripið var fram í: Amen.