154. löggjafarþing — 97. fundur,  17. apr. 2024.

vantraust á ríkisstjórnina, þingrof og nýjar kosningar.

1038. mál
[22:42]
Horfa

Halldóra Mogensen (P) (um atkvæðagreiðslu):

Forseti. Í nýrri könnun Maskínu kemur fram að einungis 9% svarenda treysta ríkisstjórninni, sem sagt treysta henni betur eftir að skipt var um forsætisráðherra, og 73% segjast vantreysta Bjarna Benediktssyni, hæstv. forsætisráðherra, í nýju embætti. Þetta vantraust sem birtist í skoðanakönnunum, sem ég átta mig á að kemur ekki upp úr kjörkössunum, skiptir máli. Það sem mér hefur fundist vera leiðinlegast og sorglegast við þessa umræðu hérna í kvöld er hversu lítil virðing er borin fyrir henni, hversu mikið skeytingarleysið er, hversu mikið þessu er einhvern veginn ýtt til hliðar eins og það sé eitthvert smávægilegt mál sem skipti engu máli.

Traust almennings, traust fólks úti í samfélaginu á þessari ríkisstjórn, á forsætisráðherra skiptir máli. Það væri mín einlæga von að ef eitthvað kæmi út úr þessari umræðu í dag, að ríkisstjórnin myndi taka það til sín og (Forseti hringir.) færi í smá naflaskoðun og skoðaði hvort það sé hægt að gera eitthvað, hægt að fara í einhverjar raunverulegar aðgerðir til að styrkja þá stöðu, því að það er vond staða þegar traustið er svona lítið hjá almenningi til ríkisstjórnarinnar.