vantraust á ríkisstjórnina, þingrof og nýjar kosningar.
Virðulegur forseti. Í einn dag síðan þessi ríkisstjórn var formuð hafa ríkisstjórnarflokkarnir treyst hver öðrum. Sá dagur er í dag. [Hlátur í þingsal.] Þingmenn Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs vantreysta Sjálfstæðisflokknum m.a. í orkumálum. Þingmenn Sjálfstæðisflokksins vantreysta þingmönnum Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs og Framsóknarflokksins í sínum málaflokkum. Ég held að Framsóknarmennirnir vantreysti sjálfum sér á köflum. [Hlátur í þingsal.] Í öllu falli er staðan sú að þetta er eini dagurinn síðan ríkisstjórnin var sett á laggirnar sem þingflokkarnir treysta hver öðrum.
Ég bara vona að þetta fari allt saman vel. Það er ekki hlutverk okkar í stjórnarandstöðunni að verja þessa ríkisstjórn vantrausti á meðan hún vantreystir sjálfri sér mest. Þingflokkur Miðflokksins mun greiða atkvæði með þessari vantrauststillögu.