virðisaukaskattur og kílómetragjald vegna notkunar hreinorku- og tengiltvinnbifreiða.
Virðulegur forseti. Sá sem hér stendur getur lofað því að það væri ekki góð þróun og mun ekki leggja slíkt til. Það er rétt að hérna er um þrjú nokkuð aðskilin atriði að ræða. Þau eru hins vegar öll tengd að því leytinu að þau eru lagfæringar, ýmist á nýlega settum lögum er varða skattheimtu eða þá breytingar á virðisaukaskatti, sem eru þá líka í raun og veru breytingar til að aðlaga íslenska löggjöf að því sem við þekkjum í sambærilegum löndum í því skyni, eins og kemur fram í framsögunni og í málinu, að auka samkeppnishæfni og auðvelda fyrirtækjum, bæði á Íslandi sem og erlendis, að eiga viðskipti sín á milli á grundvelli sams konar löggjafar.
Varðandi kílómetragjaldið er síðan líka verið að lagfæra annars vegar lög frá síðasta ári í því skyni að auka jafnframt skýrleika. Í raun og veru má segja að þetta tengist að því leytinu að þetta gerir Skattinum auðveldara fyrir og þar með borgurunum af því að það liggur þá fyrir með skýrari hætti hvert regluverkið er.