154. löggjafarþing — 97. fundur,  17. apr. 2024.

virðisaukaskattur og kílómetragjald vegna notkunar hreinorku- og tengiltvinnbifreiða.

917. mál
[23:00]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra fyrir svarið. Það sem veldur mér smá hugarangri er hvað það verður mikið flækjustig í nefndinni að fjalla um þetta af því að það eru í rauninni þrjár mismunandi tegundir af umsagnaraðilum sem þarf að senda út til og fá sem gesti og afgreiða. En já, ég hefði haldið að það hefði litið betur út fyrir hæstv. ráðherra að geta sagst hafa afgreitt 15 lög á árinu frekar en bara 12.