154. löggjafarþing — 97. fundur,  17. apr. 2024.

virðisaukaskattur og kílómetragjald vegna notkunar hreinorku- og tengiltvinnbifreiða.

917. mál
[23:00]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Sigurður Ingi Jóhannsson) (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég held að það skipti nú kannski ekki nokkru máli hversu mörg mál séu kláruð. Þetta hefur fengið mjög góða kynningu og farið tvisvar sinnum í samráðsgátt á síðustu vikum. Áformin um lagasetningu voru kynnt í lok febrúar og drögin að frumvarpinu kynnt til umsagnar í samráðsgáttinni í byrjun mars. Að auki var haft samráð og mér finnst ekki óeðlilegt að nefndin kalli til bæði Skattinn, Samgöngustofu, Samtök iðnaðarins og síðan sérfræðiþekkingu sem liggur hjá lögmannsstofum sem og endurskoðunar- og ráðgjafarstofum.