154. löggjafarþing — 97. fundur,  17. apr. 2024.

virðisaukaskattur og kílómetragjald vegna notkunar hreinorku- og tengiltvinnbifreiða.

917. mál
[23:01]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (andsvar):

Forseti. Ég hef alltaf áhuga á kaflanum um mat á áhrifum í svona frumvörpum og það er áhugaverð setning hérna, með leyfi forseta:

„… auk þess að styrkja samkeppnisstöðu Íslands þegar kemur að meðhöndlun virðisaukaskatts í viðskiptum milli ríkja. Ekki er gert ráð fyrir því að áformaðar breytingar hafi í för með sér bein og fyrirsjáanleg fjárhagsleg áhrif á ríkissjóð, hvorki á útgjalda- né tekjuhliðinni.“

Ég velti því fyrir mér hvernig við getum styrkt samkeppnisstöðu Íslands og í rauninni ekki grætt neitt á því. Svolítið áhugaverð nálgun. Ég velti fyrir mér hvaða viðmið eru eiginlega í áhrifamatinu um það hversu mikil áhrifin þurfi að vera til þess að tiltaka þau á einhvern annan hátt heldur en engin fjárhagsleg áhrif.

Ég verð líka var við þetta í fjárlögum og fjármálaáætlun, aðallega fjárlögum, þegar verið er að leggja mat á kostnað ýmissa verkefna ríkisins sem eru flokkuð innan ramma. Í rauninni, bara: Við eigum pening fyrir þessu og við ætlum að nota þann pening. En peningurinn var væntanlega notaður í eitthvað annað áður og hefur einhvern veginn núll áhrif á verkefni hins opinbera. Þannig að þegar ég sé svona greiningu, engin áhrif, hvorki á útgjalda- né tekjuhlið, þegar þetta styrkir samkeppnisstöðu Íslands í milliríkjaviðskiptum varðandi það hvar virðisaukaskattur lendir, og þau milliríkjasamskipti eru alveg þó nokkur, þá hlýtur maður að velta fyrir sér: Þetta getur ekki alveg staðist. Þetta hljóta að vera alla vega einhverjar milljónir, myndi maður giska á, ef ekki fleiri en það.