virðisaukaskattur og kílómetragjald vegna notkunar hreinorku- og tengiltvinnbifreiða.
Virðulegi forseti. Ég get nú tekið undir með hv. þingmanni að þegar menn eru að fjalla um einhver áhrif og menn hafa gert ráð fyrir hlutunum í ramma og þess vegna hafi þeir ekki áhrif á þær áætlanir sem áður voru kynntar, þá sé það auðvitað alveg rétt en kannski svona sérstök leið. En auðvitað hefur það kannski áhrif í heild sinni. Ég treysti því að nefndin fái skýrari svör heldur en hér frá ráðherra en ég get ímyndað mér að þar sem fjallað er um bætta samkeppnishæfni þegar þú veist að þú býrð við sams konar reglur þá sé mat aðila að nettó muni þetta ekki hafa áhrif þó að hugsanlega muni umsvifin aukast og í einhverjum tilvikum væru einhverjir aðilar sem gætu nýtt sér þetta sem þeir treysta sér ekki til í dag vegna þess að regluverkið er mismunandi milli landa.