virðisaukaskattur og kílómetragjald vegna notkunar hreinorku- og tengiltvinnbifreiða.
Forseti. Það vakti athygli hjá mér í þessu máli, það sem hæstv. ráðherra fór yfir í umfjöllun um málið, þessi nálægðarregla eða að virðisaukaskattur eigi að falla þar sem þjónusta er veitt, ekki endilega þar sem þjónusta er keypt eða er svo keypt af erlendum aðila. Um þetta snýst einmitt breytingartillaga Pírata gagnvart tekjustofnum sveitarfélaga, þ.e. að það sé útsvar af virðisaukaskatti sem innheimtist þar sem þjónusta er veitt eða verslun fer fram til þess einmitt að búa til ákveðinn hvata fyrir sveitarfélög að fara út í atvinnustarfsemi, leggja til ákveðna nýsköpun á atvinnuvettvangi sveitarfélaga eða landshlutasamtaka eða bara landsbyggðarinnar yfirleitt sem mun skila tekjum til nærsamfélagsins. Yfirleitt eru fyrirtæki einungis að greiða bara fyrirtækjaskatta sem fara beint til ríkisins en síðan vissulega greiðir starfsfólk útsvar af launum.
Það getur vel verið að það sé ýmiss konar starfsemi sem nýtir þjónustu sveitarfélaganna mjög mikið, eins og t.d. ferðaþjónusta sem flakkar um landið og hvað annað. En arðurinn af verslun, fyrir utan launin o.s.frv., til sveitarfélagsins er í rauninni enginn því að það fellur allur virðisaukaskattur og annað til ríkisins. Ef það væri útsvar af virðisaukaskatti þar sem virðisaukaskattur félli að einhverju leyti þar sem þjónusta er veitt þá hefðu sveitarfélögin allt í einu hvata til þess að byggja upp allt öðruvísi starfsemi en byggist í rauninni á fjölda fermetra fyrir fasteignagjöld af húsnæði eða fjölda starfsfólks fyrir útsvar af vinnu starfsfólks. Það gæti verið hægt að hvetja til uppbyggingar á atvinnustarfsemi sem snýst einmitt meira um verslun og þjónustu. Þar kæmi ferðaþjónustan t.d. sterk inn þar sem væri verið að veita þjónustu eða nota aðstöðu, t.d. bara við Gullfoss og Geysi eða Ásbyrgi eða Dettifoss eða svoleiðis. Tekjur af þjónustu sem væri seld þar af ferðaþjónustuaðilum, að mæta á Dettifoss t.d., það yrði skylt að skila virðisaukaskatti til sveitarfélagsins vegna þeirrar þjónustu.
Það er áhugavert að sjá endurspeglun á svona hugsun í þessum lögum. Það gefur mér meiri von um að þetta sé hægt. Mér hefur verið sagt að þetta sé einhvern veginn allt of flókið. Það er kannski einfaldara á milli landa heldur en milli landshluta en ætti ekki að vera það. Það þarf bara vilja til.