tekjuskattur.
Forseti. Þetta er ríkisstjórnarmál. Það er kannski áhugaverðast að þetta er ekki mál þessarar ríkisstjórnar heldur ríkisstjórnarinnar sem aðilar vinnumarkaðarins sitja í. Það væri áhugavert að fá dálitla greiningu á því hvernig barnabótakerfið og vaxtabótakerfið hafa þróast á undanförnum árum og hversu nálægt þessi lagfæring á þeim kerfum er í rauninni bara því að viðhalda fyrri verðmætum þeirra kerfa. Þegar ríkisstjórnir gera samning um ákveðna stöðu velferðarkerfanna, öryggisnetsins, í kjarasamningum og í þjóðarsáttarsamningum í gegnum tíðina þá er í rauninni verið að brjóta þau loforð og rýra tekjur þeirra sem gerðu slíka samninga þegar þau eru ekki verðlagsuppfærð eða launauppfærð til að halda skerðingarmörkum og þess háttar á sama tekjubili og þegar um þau var samið.
Hérna er um að ræða leiðréttingu, ég veit bara ekki hversu mikla leiðréttingu, í áttina að fyrri verðmætum þessara kerfa. Þess vegna verður ríkisstjórnin þegar allt kemur til alls alltaf að koma að kjarasamningagerð, af því að hún lætur það alltaf vera að láta þessi velferðarkerfi halda virði sínu. Þegar ríkisstjórnin lætur þau rýrna í verði þá er það kjaraskerðing fyrir fólk sem áður var búið að semja. Þess vegna, skiljanlega, koma aðilar vinnumarkaðarins: Bara fyrirgefið, hvað eruð þið búin að vera að gera? Viljið þið gjöra svo vel að laga þetta? Og núna getur ríkisstjórnin klappað sér á bakið fyrir að laga það sem hún skemmdi sjálf til að byrja með.