154. löggjafarþing — 97. fundur,  17. apr. 2024.

tekjuskattur.

918. mál
[23:16]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Sigurður Ingi Jóhannsson) (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Hv. þingmaður situr í fjárlaganefnd og hefur setið lengi og þekkir það auðvitað að fjárveitingavaldið er hér á Alþingi og við fjöllum um stöðuna á hverjum tíma, á hverju ári út frá því hvað mögulegt er og hvað ekki. Eins og hv. þingmaður þekkir eru fjárlög og framkvæmdir og ákvarðanir teknar með fyrirvara um samþykki Alþingis, eins og varðandi fjárveitingar.

Við erum búin að gjörbreyta barnabótakerfinu á liðnum árum. Við erum að bæta einfaldlega í þá breytingu, breikka hópinn þar sem 10.000 fleiri einstaklingar fá barnabætur en áður og þá lengra upp tekjustigann. Það er hækkað líka umtalsvert til þeirra sem njóta þess í dag.

Varðandi vaxtabæturnar þá er það auðvitað allt annars eðlis. Það er sérstök einskiptisgreiðsla til eins árs vegna þeirra aðstæðna sem uppi hafa verið í hagkerfi okkar, með háa verðbólgu og þar af leiðandi aukna vaxtabyrði, á meðan við erum á öllum öðrum árum að leggja allt á okkur að stuðla að því að verðbólga hér geti farið lækkandi. Þannig að þetta er bara einskiptisaðgerð inn á það.

Það er hins vegar ekkert vandamál fyrir nefndir þingsins að fá yfirlit yfir þróun barnabóta sem og vaxtabóta. Þær upplýsingar liggja væntanlega fyrir þó að þær séu ekki hluti af þessu frumvarpi.