tekjuskattur.
Forseti. Já, það er Alþingis að fara með fjárveitingavaldið en það er ríkisstjórnar að framfylgja lögum og gefnum samningum. Við höfum ítrekað lent í því að þeir samningar sem hafa verið gerðir verðlagsuppfærast ekki eða það er einhver ákvörðun sem er lögð fram í fjárlögum og Alþingi er ekkert sagt frá að það sé ekki verið að uppfylla hana, t.d. bara samgöngusáttmálinn fyrir höfuðborgarsvæðið þar sem var lofað 1 milljarði, verðbættum, í hvað? Tíu ár. Það var líklega bara einu sinni staðið við það; í fyrsta skiptið. Talan varð síðan meira að segja lægri en milljarður í mörg ár, ekki verðlagsuppfærð. Fjöldi samninga um NPA stendur í lögum. Nei, það var sett einhver önnur upphæð sem er metin í rauninni lægri en sú sem þarf til að uppfylla fjölda samninga og það var bara sagt: Við eigum ekki meiri pening.
Það er ríkisstjórnarinnar að koma með fjárlög sem fjármagna lög og gefna samninga til að byrja með. Ef ríkisstjórnin treystir sér ekki til þess þá þarf hún að greina frá því í smáatriðum hvernig er ekki verið að standa við lög og gefna samninga, segja það skýrt: Við gerðum samning um almenningssamgöngur á höfuðborgarsvæðinu, um milljarð á ári, verðbættan í tíu ár. Við erum að ákveða það í þessum fjárlögum, til að þingmenn geti greitt atkvæði um það í þingsal, að uppfylla ekki þann samning.
Það þarf að koma skýrt fram í fjárlögum en gerir það aldrei. Það vantar alltaf greiningar á því hvernig t.d. barnabótakerfi og vaxtabótakerfi eru að þróast í hverjum fjárlögum, hvort þau séu að rýrna að verðgildi frá fyrra ári eða ekki. Það er það sem ég kvarta ítrekað yfir. Þess vegna þurftu aðilar vinnumarkaðarins, sem hafa verið raunverulega ríkisstjórnin á undanförnum árum, (Forseti hringir.) að koma með lífskjarasamningana og kjarasamningana núna síðast. Þetta eru aðilarnir sem koma í rauninni með aðhaldið gagnvart (Forseti hringir.) borgurum landsins, ekki ríkisstjórnin. Hún spilar ren þangað til þessir aðilar, alvöruríkisstjórn landsins, koma með tillögur.