154. löggjafarþing — 97. fundur,  17. apr. 2024.

tekjuskattur.

918. mál
[23:20]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Sigurður Ingi Jóhannsson) (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég veit ekki hvaða særindi þetta eru í hv. þingmanni að fjalla svona um þær ákvarðanir sem ríkisstjórnin tók eftir samtöl við aðila vinnumarkaðarins um að leggja til ákveðinn stuðningspakka til að hjálpa til við að ná fram langtímakjarasamningi til fjögurra ára, sem tókst. Þær aðgerðir sem þar er upplýst um eru m.a. þessar tvennar, þ.e. hækkun á barnabótum og sérstakur vaxtastuðningur. Fyrir einhverjum dögum fjölluðum við hér um hækkun á fæðingarorlofsþakinu í þremur áföngum, úr 600.000 í 900.000. Þessar aðgerðir tengjast því að við erum að hjálpa hér til við að búa til umhverfi þannig að hægt sé að ná verðbólgunni niður sem er langsamlega stærsta atriðið sem íslensk heimili og fyrirtæki í landinu myndu geta nýtt sér og er langsamlega besta kjarabótin. Þess vegna erum við að koma með þetta hér.

Hv. þingmaður fór hér mikinn um samning og ruglaði reyndar aðeins saman samgöngusáttmála og samningi sem gerður var hér 2011. (Gripið fram í.) Síðan var gerður viðbótarsamningur þar sem upphaflegu upphæðinni var skipt ef ég man þetta rétt, þar sem 100 milljónir fóru til almenningssamgangna út um land og ég held að það hafi verið gert í góðu samkomulagi milli þeirra aðila. Það má ekki rugla því saman að í fjárlögum og þeim ákvörðunum sem eru lagðar hér til þá séu það einhverjir samningar milli tveggja aðila. Hér er ákvörðun sem ríkisstjórnin hefur tekið um að leggja ákveðinn stuðningspakka til til þess að stuðla að því að aðilar vinnumarkaðarins geti með góðum og öruggum hætti náð þessum fjögurra ára langtímasamningi, sem er mjög gott.