154. löggjafarþing — 97. fundur,  17. apr. 2024.

tekjuskattur.

918. mál
[23:23]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P):

Forseti. Afsakið að ég haldi aðeins áfram í þessu máli en svör ráðherra valda mér vonbrigðum. Já, það er verkefnið að koma niður verðbólgu en einmitt þessi aðferð ríkisstjórnarinnar býr til óvissu. Ríkisstjórnin tók ekki ákvörðun um hvernig ætti að huga að velferðarkerfunum í síðustu fjármálaáætlun eða þessari fjármálaáætlun og hvað þá síðustu fjárlögum, heldur skildi hún í rauninni bara eftir einhverja óljósa upphæð í almennum varasjóði upp á einhverja 17–20 milljarða fyrir kjarasamningana, óútfært. Einhverra annarra að útfæra það, aðila vinnumarkaðarins, sem koma síðan í kjarasamningunum og segja: Við viljum útfæra þetta svona.

Það er útfærslan og það er stefna stjórnvalda sem skiptir þarna öllu máli. Það skiptir máli hvert peningurinn fer til að meta það hvernig áhrif það hefur á efnahagslífið. Ef við höfum ekki þær upplýsingar þegar við erum að fjalla um fjárlög þá getum við ekki sagt fyrir um hvaða áhrif 20 milljarðar, sem eru í varasjóðnum, munu hafa á efnahagslífið þegar þeir verða síðan notaðir. Við þurfum að hafa þær upplýsingar þegar við erum að leggja mat á efnahagsstefnu ríkisstjórnarinnar. Það er það sem ég er að kvarta undan. Hvernig á að vera hægt að koma niður verðbólgu þegar allur peningurinn er settur í varasjóð þegar það skiptir einmitt máli hvernig sá peningur er notaður varðandi niðurstöðuna fyrir efnahagsmálin?

Þegar allt kemur til alls þá er þetta ágætisnotkun á þeim pening. En af hverju gat ríkisstjórnin ekki bara ákveðið sjálf að styrkja velferðarkerfið og gefið þannig aðilum vinnumarkaðarins sitt pláss til að semja um kaup og kjör miðað við stöðuna eins og hún var eftir að ríkisstjórnin var búin að ákveða sig? Það er þess vegna sem við erum að segja að ríkisstjórnin sé verklaus. Hún getur ekki ákveðið sig með svona, hún lætur aðra um að ákveða.

Og til hvers þurfum við þá þessa ríkisstjórn? Getum við ekki bara fengið aðila vinnumarkaðarins á þennan ráðherrabekk til að segja okkur hvað þau vilja? Getum við ekki bara sleppt milliliðnum hérna? Í alvöru. Þá myndum við alla vega fá upplýsingarnar, fá ákvarðanirnar þegar við erum að leggja mat á það hvort þær séu góðar fyrir efnahagsástandið eða ekki, ekki að það komi einhvern tímann í apríl: Heyrðu já, þetta er svona. Hvaða áhrif það hefur á efnahagslífið í ár kemur bara í ljós. Við vitum það ekki alveg.

Ég er orðinn dálítið langþreyttur á þessari aðferðafræði ríkisstjórnarinnar, að útvista einhvern veginn bara verkefnum Alþingis og ríkisstjórnarinnar til annarra aðila sem svara ekki fyrir það hér á Alþingi. Þau eru ekki kjörnir fulltrúar á Alþingi Íslendinga. Mér finnst það bara frekar alvarlegt að vera með þannig stöðu ef verkefnið er í alvörunni að koma niður verðbólgu. Þá er ekki boðlegt að það sé bara skilað auðu og beðið um að einhver annar leysi vandann, eins og hefur raunar verið gert og Seðlabankinn tekur upp slakann og pumpar upp stýrivextina. Það er þess vegna sem við erum með svona háa stýrivexti, af því að ríkisstjórnin hefur ekki verið að sinna efnahagsmálum.