tekjuskattur.
Virðulegur forseti. Ég ætla nú ekki að fara að elta ólar við allar yfirlýsingar hv. þingmanns hérna um hálftólfleytið eftir langan dag. Ég get samt ekki orða bundist að velta vöngum yfir því hvernig hugsun hv. þingmanns er um hvernig nálgunin er við það að ná fram og aðstoða við að ná fram fjögurra ára kjarasamningum. Það er auðvitað forsenda fyrir því að það yrðu svo miklir langtímasamningar, þ.e. til fjögurra ára, að ríkisstjórnin tók ákvörðun um að koma með svo myndarlegum hætti að til að styðja við tvennt, annars vegar lækkun verðbólgu og vonandi vaxtastigs í kjölfarið, sem og að breikka stuðninginn við barnafjölskyldur með ýmsum hætti. Ég hef nefnt nokkrar aðgerðir hérna og skólamáltíðir eru síðan til viðbótar. Þær taka sérstaklega á og hjálpa til við stuðning og það að minnka hlutfallslega fátækt barna sem hefur verið sýnt fram á í mörgum erlendum sem innlendum skýrslum. Á nokkrum sviðum fór ríkisstjórnin yfir með hvaða hætti við myndum geta best komið til stuðnings við fjögurra ára samninga.
Af því hv. þingmaður kvartaði yfir því að varasjóðurinn væri of stór þá hlýtur hann að gleðjast yfir því að í fjármálaáætlun, sem kynnt var í gær og verður rædd hér í þinginu á morgun, hefur hann farið minnkandi vegna þess að við höfum verið að sýna fram á með hvaða hætti við ætlum að nýta hann á næstu fimm árum, sem og að það sé skýrt til hvaða verkefna sá hluti hans muni þá fara.