154. löggjafarþing — 97. fundur,  17. apr. 2024.

tekjuskattur.

918. mál
[23:28]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (andsvar):

Forseti. Staður og stund til að svara því hvernig á að koma til móts við efnahagsástandið og koma niður verðbólgu er í fjármálaáætlun og fjárlögum en ekki í kjarasamningum einhverjum mánuðum seinna. Það er bara einfaldlega þannig. Það er það sem ég er að gagnrýna. Þingið var skilið eftir í óvissu um efnahagsaðstæðurnar þangað til búið var að klára samninga. Kannski var svona flókið einmitt að gera þessa samninga af því að ríkið skildi eftir tómarúm sem átti eftir að fylla upp í og mála inn hvað þyrfti að gera í ríkisfjármálunum. Það er vandinn sem við erum að glíma við, þetta ákvörðunarleysi.

Það var ekki fyrr en nauðsynlega þurfti að koma til móts við einhverja aðila á vinnumarkaðnum að hægt var að taka ákvarðanir. Ákvörðunin á að liggja fyrir í fjárlögum, þar er stefnan sett fram, og í fjármálaáætlun. Enda er í fjármálaáætlun, sem við ætlum að ræða á morgun, verið að tala um t.d. aðhald, þ.e. 9 milljarða í aðhald sem ríkisstjórnin veit ekki hvernig hún ætlar að nota, hvar eigi að skera niður eða draga úr útgjöldum. Hvernig er það efnahagsstefna? Ég bara spyr. Það skiptir máli hvernig peningurinn er notaður miðað við hvaða áhrif það hefur á hagkerfið.

Fjármálaráð er rosalega skýrt með þetta. Það er hægt að eyða pening, það er meira að segja hægt að fara í aukin útgjöld til að spara til framtíðar. Það er líka hægt að fara í aðhald með því að eyða pening, þ.e. fjárfestingar búa til verkefni sem spara til framtíðar. En við fáum óákveðna úthlutun, annaðhvort aðhald eða útgjöld, (Forseti hringir.) og þá er ekki hægt að leggja mat á hvort þetta séu góðar ákvarðanir.