154. löggjafarþing — 97. fundur,  17. apr. 2024.

opinber innkaup.

919. mál
[23:35]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (andsvar):

Forseti. Bara til að negla naglann alla leið hvað þetta varðar; hér á að leggja niður stofnun og sameina og fækka starfsskyldum o.s.frv. og mat á áhrifum er bara: Óveruleg áhrif á kostnað fyrirtækja og opinberra aðila. Ekki er talið að frumvarpið hafi áhrif á fjárhag sveitarfélaga eða jafnrétti kynjanna.

Ef það kemur ekki fram hver sparnaðurinn af þessu er þá trúi ég því ekki að það sé nokkur sparnaður. Ég held meira að segja að ef ég fer yfir fjárlagafrumvarpið þá hafi örugglega komið fram að þetta væri innan ramma, eins og venjulega.

Hvað er hægt að gera til þess að fá í alvörunni mat á áhrifum frumvarps til laga? Það á ekki að vera svo flókið. Lágmarkskrafan sem er gerð í lögum um opinber fjármál er að stjórnarfrumvörp séu metin annaðhvort til ábata eða kostnaðar. Það er bara aldrei þannig. Það er pínulítið óþolandi ef við eigum að ræða fjárlög og fjármálaáætlun en höfum ekki hugmynd um það hver framkvæmd laga verður síðan að lokum þegar þau koma til notkunar. Við erum að glíma við það, eins og með lög um fullnustu refsinga, að við höfum ekki hugmynd um hvað það kostar að sinna fullnustu refsinga og betrun. Þjónusta Landhelgisgæslunnar; við vitum að þjónustunni er ekki sinnt. Við vitum ekki hvað það kostar að sinna henni lögum samkvæmt af því að við fáum aldrei tillögur um það, við fáum aldrei upplýsingar um það í breytingartillögum eða frumvörpum hvað breytingarnar muni kosta. Við getum aldrei rakið þessar upplýsingar.

Þess vegna eru fjármál ríkisins þegar allt kemur til alls í algerri upplausn að mínu mati. Út af þessu er engin yfirsýn yfir það hvar er hægt að hagræða t.d. (Forseti hringir.) Það er alltaf sagt: Frábært, við ætlum að hagræða í rekstri hins opinbera. (Forseti hringir.) Hvar? Hvernig? Það er aldrei hægt að svara því. Það eru 9 milljarðar en við vitum ekki alveg enn þá hvernig, út af því einmitt að það vantar kostnaðar- og ábatagreiningu.