opinber innkaup.
Virðulegur forseti. Það er ábyggilega rétt hjá hv. þingmanni að við getum örugglega gert betur í því að reyna að meta ávinning af því sem við erum að gera í hagræðingarskyni. Ég tel líka að það sé mjög mikilvægt. Það hlýtur að vera einn hluti af því sem við erum að reyna að gera, þegar við teljum að markmiðið sé að einfalda og gera hlutina skilvirkari, að í því felist einhver ávinningur og er gott að geta sett upp slíka mælikvarða.
Ég held t.d. að það væri áhugavert og mikilvægt — og við erum að reyna að gera það til að mynda í Stafrænu Íslandi að setja upp mælikvarða á árangur af því sem þar hefur verið gert. Við sjáum að árangurinn er margvíslegur. Nú þegar eru mælaborð sem sýna fram á alls kyns betri þjónustu fyrir borgarana, einfaldari og skilvirkari. Það er ábyggilega hægt að umreikna það í fjármuni líka til að sýna fram á að sú vegferð sem við erum á þar sé sannarlega skynsamleg og góð, eins og allir eru að gera í kringum okkur og okkur gengur reyndar bara býsna vel á því sviði.
Það sama gildir þegar við erum að einfalda stofnanakerfið. Það er held ég mikilvægt að sjá fram á hvernig sá ávinningur verður, reyna að meta hann og læra þannig smátt og smátt af því hvernig hlutirnir gerast best í því skyni að geta haldið áfram á þeirri braut. Það er talsvert verkefni þar að vinna held ég sem gæti skilað okkur umtalsverðum ávinningi en alveg klárlega skilvirkari og betri þjónustu við borgara landsins.