fjármálaáætlun fyrir árin 2025--2029.
Virðulegur forseti. Jú, fyrrverandi innviðaráðherra var með frumvarp um þá hluti sem hæstv. ráðherra nefnir hér; það fól m.a. í sér nýtt jöfnunarframlag, breytingar á framlögum vegna íslensku sem annars tungumáls. Þar átti Reykjavík að koma inn. Þannig að innviðaráðherra sá greinilega að sér, ætlaði sér að koma Reykjavík inn í þetta.
Síðan var í þessu frumvarpi vannýting útsvars þannig að sveitarfélög sem voru að gefa afslátt á útsvari á kostnað jöfnunarsjóðs verða bara skert í framhaldinu. Ég tel það bara eðlilegt að það sé gert, að ekki sé verið að veita einhverja afslætti af útsvari en fá svo fullt framlag úr jöfnunarsjóði. Það skekkir niðurstöðunni verulega. Mér finnst það því bara sanngjarnt að þetta frumvarp nái fram að ganga.
En þetta átti að fara í gegn á þessu þingi. Og maður veltir fyrir sér, af því að hæstv. ráðherra nefnir hér að þetta sé hér inni í þinginu, að fyrrverandi ráðherra stoppaði þetta mál. Ætlar hún að koma því í gang aftur?