154. löggjafarþing — 99. fundur,  19. apr. 2024.

fjármálaáætlun fyrir árin 2025--2029.

1035. mál
[11:21]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir að koma til þessarar umræðu um leið og ég óska henni til hamingju með nýtt embætti. Það eru nokkur atriði sem mig langar til að koma inn á við þetta tækifæri, ætli ég reyni ekki að afmarka mig við þrjú. Það er í fyrsta lagi varðandi áform um breytta gjaldtöku af umferð sem koma fram í áætluninni, þ.e. að horft sé til þess að fikra sig að því marki að þau gjöld verði 1,7% af vergri landsframleiðslu innan nokkurra ára. Lítur hæstv. ráðherra svo á að ofan á þá hlutfallstölu leggist síðan tekjur af þegar tilkynntum tafagjöldum á höfuðborgarsvæðinu, gjaldtöku af umferð um jarðgöng og gjaldtöku vegna svokallaðra samvinnuverkefna? Er þessi þrefalda gjaldtaka, þ.e. gjaldtaka af mismunandi gerðum út frá þessum þremur kerfum sem forveri hæstv. ráðherra hefur talað fyrir — bætast hún ofan á þetta markmið um 1,7% gjaldtöku, og væntanlega á virðisauki eftir að bætast ofan á undirliggjandi kostnað í því samhengi?

Mig langar sömuleiðis að spyrja hæstv. ráðherra um afstöðu hennar til fyrirliggjandi samgönguáætlunar sem nú hefur legið óhreyfð í nefnd frá því, að ég held, í október síðastliðnum. Sér hæstv. ráðherra fyrir sér að senda einhver skilaboð til nefndarinnar, eftir þeim leiðum sem færar eru, og hvetja til breytinga á áætluninni? Eða er ráðherrann sáttur við áætlunina eins og hún liggur fyrir núna? Ég tek bara af handahófi dæmi um meðferðina á Vesturlandi og fjárveitingar inn á það svæði í áætluninni eins og hún liggur fyrir.