fjármálaáætlun fyrir árin 2025--2029.
Forseti. Já, það er nú gott að geta hlúð að uppskerunni frá stjórnarsamstarfinu 2009–2013, ánægjulegt. Ég tek undir með hæstv. ráðherra, sóknaráætlanirnar skipta mjög miklu máli í hverjum landshluta og fyrir nærsamfélagið. Ég fagna þeim orðum hæstv. ráðherra að efla eigi frumkvæði heimamanna og valdefla, eins og hún orðaði það, og ég hygg að góður tími gefist nú á þessu ári til að undirbúa nýja samninga sem taka væntanlega gildi um áramótin og setja í þá hærri upphæðir og gera þá fjölbreyttari. Ég þakka hæstv. ráðherra svarið.