fjármálaáætlun fyrir árin 2025--2029.
Virðulegi forseti. Varðandi gjaldfrjálsar skólamáltíðir og stöðu gjaldfrjálsra skólamáltíða sem aðgerðar, í þágu þess að draga úr fátækt barna sem sveitarfélögin, ríkið og aðilar vinnumarkaðarins, verkalýðshreyfingin, lögðu mikla áherslu á núna, var sú ákvörðun tekin í kjarasamningum að hafa þetta algilda aðgerð sem næði til allra skólabarna óháð efnahag. Sjálf tel ég að það hafi verið rétt niðurstaða. Ég tel að það hafi verið rétt niðurstaða vegna þess að skólamáltíðir eiga að mínu mati að vera hluti af jöfnunarinnviðum samfélagsins sem tryggir sambærilegt aðgengi að slíkri grunnþjónustu fyrir öll börn. Mér fyndist það umhugsunarefni í þessari umræðu hvort rök hv. þingmanns ættu þá við aðra þjónustu eins og til að mynda grunnskólaþjónustu eða sjúkrahúsþjónustu eða eitthvað annað sem við ræðum hér. Ég tel að þetta sé ekki gott dæmi um þjónustu sem ætti að vera tekjutengd. Ég tel að þetta sé dæmi um þjónustu sem þurfi að vera óháð efnahag og standa öllum til boða. Auk þess er það nú svo að ég á sögu dálítið langt aftur í umræðunni um skólamáltíðir, raunar aftur til ársins 2006 þegar ég var í framboði til borgarstjórnar Reykjavíkur. Þá varð ég þess áskynja að þegar börn fengu ekki skólamáltíð vegna efnahags var það ekki bara vegna þess að fjármuni skorti á heimilinu heldur stundum vegna forgangsröðunarinnar. Þetta snýst líka um það að öll börn njóti þess og treysti því að samfélagið tryggi þeim mat án endurgjalds.