154. löggjafarþing — 99. fundur,  19. apr. 2024.

fjármálaáætlun fyrir árin 2025--2029.

1035. mál
[11:40]
Horfa

innviðaráðherra (Svandís Svavarsdóttir) (Vg):

Virðulegur forseti. Eins og kollegar mínir sem hafa fjallað um þessi mál tel ég fulla ástæðu til að skoða þessa ábendingu hv. þingmanns. Raunar hefur þetta verið í umræðunni um nokkurt skeið. Samkvæmt mínum upplýsingum er Hagstofan að skoða þessa aðferðafræði, þ.e. með hvaða hætti húsnæðisþátturinn kemur þarna inn, og hyggst gera breytingar. Það liggur ekki fyrir hvernig það mun nákvæmlega verða gert en hins vegar er það ekki hluti af viðfangsefnum míns ráðuneytis og heyrir ekki undir mitt ráðuneyti, þær ákvarðanir og þær ráðstafanir. En ég tek undir með hv. þingmanni að þetta er eitt af því sem þarf að skoða og þá í stærra samhengi.