fjármálaáætlun fyrir árin 2025--2029.
Frú forseti. Ég vil þakka hæstv. ráðherra yfirferðina í þessari umræðu og kannski sérstaklega fyrir það að draga fram hve málaflokkar samgöngu og skipulags skipta miklu máli varðandi það hvernig við tökumst á við loftslagsvandann en skipta líka máli upp á það að við byggjum upp gott og skemmtilegt samfélag. Það skiptir því máli að hér sé vel haldið á málum.
Mig langar að spyrja út í markmið ráðherrans varðandi samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda frá vegasamgöngum. Þau koma fram á tveimur stöðum, annars vegar í 11. kafla, um samgöngur, og hins vegar í 31. kafla, um skipulagsmál. Nú ætla ég ekkert að hengja ráðherrann upp á prik fyrir þetta en þetta eru ólíkar tölur. Þetta er sama markmiðið en tölum skeikar. Í öðrum kaflanum er stefnt að því að ná losun niður í 759 kílótonn en í hinum kaflanum niður í 645 kílótonn. Ég legg það bara inn hjá ráðherranum að ráðuneytið skili hér inn einhverju minnisblaði um það hvort markmiðið sé hið raunverulega. Ef við gefum okkur að metnaðarfyllra markmiðið sé málið þá erum við samt bara að tala um 17% samdrátt í losun frá vegasamgöngum árið 2029. Þetta slefar rétt svo upp í 21% markmiðið samkvæmt aðgerðaáætluninni sem er nú þegar orðin löngu úrelt, fjögurra ára gömul aðgerðaáætlun í loftslagsmálum. Er þetta raunverulega markmiðið? Er virkilega stefnt að því að uppfylla bara 21% samdrátt í losun í vegasamgöngum en ekki eitthvað meira?
Mig langar svo að nefna að hér hefur hugtakið innviðaskuld verið nefnt. Hvergi er hún sennilega jafn mikil og þegar kemur að vistvænum samgöngum. Nefna má Strætó sérstaklega. Landshlutasamtök hafa bent á þetta í tengslum við samgönguáætlun og ungmenni hafa bent á þetta, fyrir utan höfuðborgarbúana eins og við þekkjum svo vel. Þarf ekki að gera einhvern skurk í því, (Forseti hringir.) umfram það sem er gert til lengri tíma í gegnum borgarlínu, (Forseti hringir.) að græja eitthvað skemmtilegt í kringum Strætó hér og nú?