fjármálaáætlun fyrir árin 2025--2029.
Virðulegur forseti. Staða sveitarfélaga er misjöfn. Það er gott ef sveitarfélögin stækka um 2–3% á ári en mörg hver eru að stækka um 7–10% á ári. Það gerir þetta miklu erfiðara. Spurning um samræmingu — það er ekki hægt að leggja að jöfnu sveitarfélag sem stækkar hægt og sveitarfélag sem stækkar hratt. Við getum nefnt Árborg, við getum líka nefnt Suðurnesin, þetta eru sveitarfélög sem vaxa mjög hratt. Ef satt reynist að verið sé að vinna í þessum málum langar mig hreinlega að leggja það til við ráðherra að stofnaður verði innviðasjóður sem sveitarfélög geta leitað í og fengið þar þolinmótt fjármagn til þess að við gætum upplifað það að fyrst yrði grunnskóli byggður og síðan yrði lóðum úthlutað, það væri óskastaðan. En ég þekki ekki neitt sveitarfélag sem er í þannig stöðu. Ég held að við þyrftum að endurmeta alla tekjustofna sveitarfélaganna ef slíkt á að verða veruleiki eða sú útópía sem við sjáum fyrir okkur í framtíðinni.