fjármálaáætlun fyrir árin 2025--2029.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hæstv. umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra fyrir að fara yfir þessi málefni sem undir hann heyra; þau eru heilmörg og gríðarlega mikilvæg. Ég hef áður átt orðastað við hæstv. ráðherra hvað varðar jöfnun á raforku og dreifingu. Í einu af markmiðum ríkisstjórnarinnar, markmiði sem hefur verið lengi á lofti og hefur lifað af margar ríkisstjórnir á þessari öld, segir að neytendur eigi að hafa jafnt og öruggt aðgengi að orku á samkeppnishæfu verði á virkum orkumarkaði. Í landinu eru lög sem eru 20 ára á þessu ári sem fjalla um sérstaka jöfnun á dreifingu raforku. Nú er það svo að bæði Rarik og Orkubú Vestfjarða hafa sérstaka heimild til að hafa mismunandi gjaldskrá á dreifingu á raforku í dreifbýli. Það gengur bara ekkert og hefur ekki gengið í öll þessi ár sem þessi sérstöku lög hafa lifað að jafna þennan orkukostnað. Orkan sjálf er á samkeppnismarkaði og það gengur svo sem ágætlega. Við getum fengið okkur ódýrustu orkuna og skipt um fyrirtæki í hverjum mánuði en það er svo mikilvægt að við göngum að sama borði. Það er mjög mismunandi hvar á landinu við erum og líka hvaða orkugjafa við notum til húshitunar, hvort það er raforka eða vatn, heitt vatn eða fjarvarmi. Kostnaðurinn við fjarvarmaveitur um landið er að hækka (Forseti hringir.) gríðarlega og sérstaklega raforka í dreifbýli (Forseti hringir.) hvað varðar bæði notkun og húshitun. Sjáum við í þessari áætlun einhver áform um það að ganga lengra í þessum efnum?