fjármálaáætlun fyrir árin 2025--2029.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hæstv. ráðherra fyrir svörin. Nú er ég aðallega að fókusa á dreifingu raforku þar sem er mismunandi gjaldskrá og okkur gengur ekkert að greiða hana niður. Það er alveg rétt, sem hæstv. ráðherra bendir á, að við erum með misjafna orkugjafa og erum að nota jarðefniseldsneyti á Vestfjörðum í allt of miklum mæli. Það fer aðallega í að kynda fjarvarmaveiturnar. Ég vil leggja fram þá fyrirspurn hvort fram undan sé einhver greining á mismunandi kostnaði við dreifiveitur, og þá er ég tala um dreifinguna, hvort ekki þurfi að fara í virkilegt átak í að greina þennan kostnað og hvernig við getum náð honum niður eða öllu heldur jafnað honum út meðal landsmanna, sem er gríðarlega mikilvægt. Við erum með jöfnun á svo mörgum sviðum en við verðum að ná jöfnun í þessu líka.
Síðan er eilítil spurning í lokin: Hvar stendur þjóðgarðurinn á Vestfjörðum?