fjármálaáætlun fyrir árin 2025--2029.
Virðulegi forseti. Fyrst varðandi spurninguna sem kom í lokin, þá er það bara í vinnslu. Ég vonast til að geta átt fund með íbúum á svæðinu þar sem sú vinna sem hefur farið fram verður kynnt; það verður örugglega á næstunni. Þetta snýst líka um það að fara betur með orkuna, ekki bara að búa hana til. Þess vegna höfum við komið með varmadælufrumvarpið sem einfaldar styrkveitingar, sem er mest notað á landsbyggðinni til að nýta orkuna betur.
En bara til að svara spurningunni: Auðvitað eru menn ávallt í því að reyna að jafna þennan kostnað en við verðum auðvitað að fara í rót vandans. Eitt er að það vantar meiri græna orku. Annað er það að þetta regluverk er orðið alveg gríðarlega flókið og stundum vegur það gegn markmiðum sínum. Það vegur gegn því að fólk finni lausnir. Það er eitthvað sem við ætlum líka að endurskoða og er löngu kominn tími á.