154. löggjafarþing — 99. fundur,  19. apr. 2024.

fjármálaáætlun fyrir árin 2025--2029.

1035. mál
[12:30]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið. Það er mjög gott að vita að það er ekki orkuskortur í framtíðinni á Íslandi miðað við þá upptalningu sem hæstv. ráðherra fór yfir í ræðu sinni hér áðan. En hvenær á að fara að virkja Hvammsvirkjun? Hvernig stendur með leyfið þar? Hvernig stendur með virkjunarframkvæmdir á Vestfjörðum t.d.? Hvenær á að fara að virkja þar? Það er alveg kristaltært að Ísland er ekki land hreinnar orku svo lengi sem við seljum uppruna orkunnar okkar til Evrópu. Það eru ekki vitleysingar í Evrópu sem eru að kaupa þessi upprunavottorð. Það eru alveg hreinar línur. 13% af orku á Íslandi eru hrein orka. Við getum ekki kallað okkur land hreinnar orku á meðan svo er. 63% eru frá kolum og olíu, 24% kjarnorku. Evrópa er að skreyta sig með íslenskum fjöðrum í orkumálum.

Einn uppáhaldskaflinn minn í sáttmála ríkisstjórnarinnar, sem er þá væntanlega sáttmáli tveggja ríkisstjórna, er einmitt um loftslagsmálin, um það að ætla að vera best í heimi. Við ætlum að vera best í heimi í orkumálunum. (Forseti hringir.) Á sama tíma erum við að selja uppruna orkunnar okkar og tala um að Ísland sé grænt hagkerfi og guð má vita hvað, sem er algjört blaður, alger hræsni. Það vita það allir. Ég veit alveg hvernig þetta er. (Forseti hringir.) Við eigum ekki að vera með lög um raforkuviðskipti yfir landamæri og við eigum ekki að selja uppruna íslenskrar orku úr landi. (Forseti hringir.) Við eigum að byggja upp grænt hagkerfi.