154. löggjafarþing — 99. fundur,  19. apr. 2024.

fjármálaáætlun fyrir árin 2025--2029.

1035. mál
[13:02]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf):

Virðulegur forseti. Ég veit að hæstv. ráðherra þykir gaman að ræða evrópsk orkumál en ég verð að koma með athugasemd og segja að þau byggjast öll á því að það sé samtengt raforkukerfi. Þau byggjast öll algerlega á því, það er grundvöllurinn undir þetta. Við erum ekki inni á þessu samþykkta kerfi og þar eigum við að halda okkur og ekki vera með lög um raforkuviðskipti yfir landamæri og guð forði okkur frá því að vera hluti af raforkumarkaði sem er skipulagður eins og hlutabréfamarkaður. Á hlutabréfamarkaði er kannski selt eitt bréf á 100.000 en raforkan er alltaf seld öll. Þannig að það að skipuleggja raforkumarkaðinn eins og hlutabréfamarkaðinn er náttúrlega alveg galið, en þeir eru að endurskoða þetta í Brussel.

Það sem mig langar að spyrja hæstv. ráðherra að er varðandi markmið stjórnvalda um kolefnishlutleysi fyrir Ísland árið 2040. Það kemur fram í svari ráðherrans við fyrirspurn um markmiðið að skilgreining á því hvað falli undir markmið stjórnvalda um kolefnishlutleysi liggi ekki fyrir og því sé ekki hægt að segja hver losun í tonnum koldíoxíðsígilda sé. Einnig kemur fram í þessu svari, sem er mjög áhugavert, að það sé lykilatriði að þær upplýsingar sem liggi fyrir til grundvallar mati á árangri Íslands í átt að kolefnishlutleysi séu áreiðanlegar og unnt sé að staðfesta þær. Nú sé skortur á áreiðanlegum gögnum varðandi tiltekin atriði sem varði landnotkun og endurheimt vistkerfa, sem skiptir gríðarlega miklu máli, en það sé hins vegar unnið að því að bæta hvernig staðið er að mati á losun gróðurhúsalofttegunda og upptöku kolefnis vegna landnotkunar. Það er mjög mikilvægt að þetta verði gert svo Ísland geti sýnt fram á að það standist kröfur reglugerðarinnar um gæði gagna. Það virðist vera að við ætlum að ná kolefnishlutleysi án þess að við séum með skilgreiningar á hreinu og líka með landnotkun, eins og t.d. endurheimt votlendis, birkiskóga og skóglendis og annað slíkt, hvaða áhrif það hafi á kolefnishlutleysi. (Forseti hringir.) Þegar ég les þetta svar ráðherra þá líður mér eins og Ísland ætli að hlaupa 30 km án metrakerfisins, (Forseti hringir.) að það vanti skilgreiningar til að ná þessu markmiði.