154. löggjafarþing — 99. fundur,  19. apr. 2024.

fjármálaáætlun fyrir árin 2025--2029.

1035. mál
[13:08]
Horfa

umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra (Guðlaugur Þór Þórðarson) (S):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Fyrst aðeins út af forgangsröðum Vestfjarða — jú, þess vegna setti ég strax Vestfirðingahópinn af stað til þess að meta það sem undir mitt ráðuneyti heyrir og það liggur alveg fyrir að það er í forgangi. Varðandi stöðu vinnunnar hvað varðar landnotkun, sem er kannski minnsta áhyggjuefnið þegar kemur að kolefnishlutleysinu, þá er hún búin að vera í fullum gangi og heldur áfram og það er sjálfsagt að ræða það sérstaklega. En við erum einangrað raforkukerfi og á minni vakt verður ekki settur neinn sæstrengur til Evrópu. Ég get alveg lofað hv. þingmanni því og ég hef margoft lýst því yfir. Hins vegar er það þannig að ef hv. þingmaður er fylgjandi því að hann fái að selja birtuorkuna sína sem hann er með á Vestfjörðum inn á kerfið þá er hann fylgjandi því að það sé markaður. Til þess er leikurinn gerður, og þar erum við bara að taka upp eitthvað sem aðrir hafa haft og nýtt með góðum árangri. Þannig að hv. þingmaður er að styðja mig (Forseti hringir.) í því verkefni og ég fagna því og þakka fyrir stuðninginn.