154. löggjafarþing — 99. fundur,  19. apr. 2024.

fjármálaáætlun fyrir árin 2025--2029.

1035. mál
[13:11]
Horfa

umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra (Guðlaugur Þór Þórðarson) (S):

Virðulegi forseti. Stutta svarið er já og það hef ég gert. Það er auðvitað þannig að það eru ekki markaðar tekjur lengur en ég hef lagt á það höfuðáherslu að þeir fjármunir sem eru teknir af ofanflóðagjaldi skili sér og við erum að sjá hækkun upp á 1,5 milljarða og sömuleiðis höfum við verið að flýta verkefnum eins og t.d. á Austfjörðum, því að þetta er algjört forgangsmál. Það voru gefnar út í mínu ráðuneyti þrjár skýrslur á síðasta ári um náttúruvá og við erum líka að vinna í málefnum ofanflóðasjóðs og munum halda því áfram vegna þess að þetta er gríðarlega stór og mikilvægur málaflokkur sem varðar okkur öll þó að við búum ekki öll á þessum svæðum. Náttúruvármálin hafa í breiðu samhengi verið eitt af mínum forgangsmálum og þannig verður það. Við erum líka að sjá breytt ofanflóð. Við erum búin að taka út og gera gríðarlega mikið á undanförnum áratugum en eins og loftslagsskýrslan, aðlögunarskýrslan að loftslagsbreytingum, sýnir þá erum við að sjá öðruvísi ofanflóð en við höfum verið með og síðan eru aðrar náttúruvár líka.

Stutta svarið er: Já, ég mun gera allt hvað ég get. En það er auðvitað þannig, svo maður tali bara um hlutina eins og þeir eru, að maður er með sínar áherslur og síðan er einhver niðurstaða og maður þarf að vinna eftir henni. En við erum alla vega að sjá hækkun í þennan málaflokk sem er gríðarlega mikilvægt og ég er ánægður að við náðum því að flýta framkvæmdum, sem ég lagði höfuðáherslu á og við kynntum — tíminn er fljótur að líða — á fundi ríkisstjórnarinnar á Austfjörðum fyrir nokkuð löngu síðan, svo bara eitt dæmi sé tekið en það er af mjög mörgu að taka. Ég þakka hv. þingmanni fyrir að taka þetta mál upp. Þetta er mjög mikilvægt og við þurfum ekki bara að vera (Forseti hringir.) vakandi heldur þurfum við að vinna að þessu nótt og dag.