154. löggjafarþing — 99. fundur,  19. apr. 2024.

fjármálaáætlun fyrir árin 2025--2029.

1035. mál
[13:16]
Horfa

Guðbrandur Einarsson (V):

Forseti. Mig langar, með leyfi forseta, að lesa upp úr grein sem birtist í Víkurfréttum í þessari viku og er svohljóðandi:

„Sorporkustöð með 140 þúsund tonna afköst á ári geti verið mikilvægt „púsl“ til að auka orkuöryggi á Suðurnesjum.

Niðurstöður úr nýrri skýrslu um hvort hagkvæmt sé að brenna úrgangi til orkuvinnslu hér á landi í nýrri hátæknisorpbrennslu eru jákvæðar. Það sé hagkvæmara að brenna úrgangi til orkuvinnslu en að flytja hann úr landi. Til skoðunar er að staðsetja stöðina sem myndi kosta 20–40 milljarða í Bergvík/Helguvík á Suðurnesjum.

Orkan, heita vatnið og rafmagnið sem stöðin myndi framleiða er umtalsverð og hugmyndin er að nýta hana og staðsetja brennsluna í samræmi við það. Hátæknibrennslustöð með 140 þúsund tonna afköst á ári geti verið mikilvægt „púsl“ til að auka orkuöryggi á Suðurnesjum og auka framboð á orku sem nú er umframeftirspurn eftir. Ef hugmyndin hlýtur brautargengi er næsta skref að stofna undirbúningsfélag til að vinna frekari greiningar- og undirbúningsvinnu. Sorpa, Kalka, HS Orka og umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið hafa sýnt áhuga á að koma að stofnun slíks félags.“

Mér finnst þetta áhugavert og það er ánægjulegt að sjá þessa frétt. Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra: Hver er aðkoma ráðuneytis orkumála að þessu verkefni og sér ráðherra fyrir sér að leggja fram einhverja fjármuni til að þetta verkefni verði að veruleika?