154. löggjafarþing — 99. fundur,  19. apr. 2024.

fjármálaáætlun fyrir árin 2025--2029.

1035. mál
[13:20]
Horfa

Guðbrandur Einarsson (V):

Virðulegur forseti. Hv. þm. Orri Páll Jóhannsson lagði mikla áherslu á hringrásarhagkerfið í sinni ræðu áðan og ég upplifi það einhvern veginn að þetta sé bara mjög gott dæmi um hringrásarhagkerfið. Ég þekkti bara hugtakið sorpbrennslustöð og það felur í sér bruna og mengun en að fara að upplifa eitthvað sem heitir sorporkustöð er eitthvað sem fangar athygli mína, að við getum farið að nýta sorp til þess að búa til orku í staðinn fyrir að brenna sorp og auka mengun. Þetta er í mínum huga mjög áhugavert og ég myndi telja að það ætti að vera markmið, ef þetta verkefni verður að veruleika og niðurstaðan verður jákvæð út úr því, að svona sorporkustöðvar verði settar upp úti um allt land.