154. löggjafarþing — 99. fundur,  19. apr. 2024.

fjármálaáætlun fyrir árin 2025--2029.

1035. mál
[13:36]
Horfa

Oddný G. Harðardóttir (Sf):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið og það er áhugavert að skoða hverjir það eru sem gera athugasemd við frumvarpið um Auðlindina okkar. En í niðurstöðu vinnunnar sem stendur undir frumvarpinu var hugmynd um að leigja út byggðakvótann og að leiguverðið gengi til sveitarfélaga. Þetta var um 1% af úthlutuðum kvóta, lítið skref en samt mikilvægt, en ef gera á tilraun með útboð á svona litlum hluta er hins vegar hætta á því að auðvelt verði að gagnrýna það og að menn myndu segja: Þetta er jaðarverð og allt of hátt. Það væri marktækara að bjóða út stærri hluta og setja hluta stóra kerfisins í pottinn, t.d. 2% til viðbótar, og gera tilraun til þess að ná fram markaðsverði, sem svo mikill meiri hluti þjóðarinnar kallar eftir eins og ég nefndi áðan. En það var ekki lagt til, enda þyrfti þá að hrófla við útgerðarrisunum, auðmönnunum í kerfinu, og það skilst mér að þessi ríkisstjórn vilji ekki gera.

En hyggst hæstv. ráðherra leggja til útboð á byggðakvótanum? Og ef ekki, (Forseti hringir.) hvernig á þá að taka á þeirri gagnrýni sem komið hefur endurtekið fram um úthlutun á byggðakvóta?