154. löggjafarþing — 99. fundur,  19. apr. 2024.

-fjármálaáætlun fyrir árin 2025--2029.

1035. mál
[13:37]
Horfa

matvælaráðherra (Bjarkey Gunnarsdóttir) (Vg):

Virðulegi forseti. Ég játa það að ég er ekki komin með neinar tillögur til mín varðandi byggðakvótann þannig að ég get illa sagt til um það hvernig ég hyggist bregðast við því þegar ég fæ minnisblað um það, hvort hann verður boðinn upp eða hvort hann verður áfram samkvæmt þeim reglum sem gilt hafa um hann fram að þessu. Ég hef í raun bara ákveðið að tala með þeim hætti um það sem ég hef ekki fyrir framan mig, það sem ég sem veit ekki nægilega mikið um, að svara því til að ég verði að fá að skoða það betur hvort ég hyggist breyta einhverju frá því sem nú er án þess að gefa nokkurt vilyrði um að slíkt verði. En ég er ekki komin með neinar tillögur til mín varðandi meðferð byggðakvótans þannig að ég hyggst bara bíða og get því miður ekki svarað þingmanninum með öðrum hætti en svona núna.