154. löggjafarþing — 99. fundur,  19. apr. 2024.

fjármálaáætlun fyrir árin 2025--2029.

1035. mál
[13:45]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf):

Virðulegur forseti. Hæstv. matvælaráðherra var að tjá sig rétt áðan um strandveiðarnar. Hún segist vera bundin af lögunum en hún er líka bundin af stjórnarskránni, af atvinnufrelsi, að fólk megi stunda þá vinnu sem það kýs og það megi takmarka það með lögum og þá þurfi að vera almannahagsmunir til að styðja það. Það eru engir almannahagsmunir sem styðja þetta, að veiðar á krók eða veiðar á öngul við Íslandsstrendur ógni almannahagsmunum, svo það liggi fyrir. Á síðustu fjórum eða fimm árum eru 16.000 tonn af þorski óveidd, 16.000 tonn miðað við kvótaúthlutanir. Það hefur komið fram í fréttum meðal annars. Hún getur notað þann afla og komið með reglugerðarbreytingu og tryggt að það verði veiðar 48 daga í ár í strandveiðikerfinu. Ég get líka bent á ályktun frá Fonti sem er svæðisfélag í Norðausturkjördæmi, kjördæmi ráðherrans. Þeir hafa meira að segja, og fleiri strandveiðimenn, fallist á það að það verði tíu dagar í mánuði og samhliða breytingunum verði tryggt að ákvæðið um að Fiskistofa skuli stöðva veiðar þegar sýnt þykir að leyfilegum heildarafla verði náð komi ekki til framkvæmda. Í þessu getur ráðherrann beitt sér. Hann getur beitt sér fyrir því að Fiskistofa stöðvi ekki framkvæmdirnar.

Spurning mín til ráðherra er þessi: Ætlar hann að beita sér fyrir því að strandveiðimenn fái 48 daga í sumar og fái að veiða 12 daga í mánuði maí, júní, júlí, ágúst, eða ekki? Og hvernig ætlar hann að beita sér fyrir því? Það er vel hægt að leggja fram frumvarp ef þess þarf. Það myndi renna í gegnum þingið eins og enginn væri morgundagurinn og það væri hægt að samþykkja það fyrir tímabilið. Það er vel hægt að gera það, annað eins hefur verið gert. Við tókum t.d. frumvarp varðandi Grindavík fyrir í haust klukkan hálftvö um daginn og það var samþykkt um 11 um kvöldið. (Forseti hringir.) Það er vel hægt að gera það og það þarf ekki (Forseti hringir.) lagabreytingu. Ég minni á fyrirrennara hennar í matvælaráðuneytinu, (Forseti hringir.) hún stöðvaði hvalveiðar sem var skýrt lögbrot og brot á atvinnufrelsi.

(Forseti (ÁLÞ): Forseti vill minna þingmenn á að gæta að ræðutíma.)