fjármálaáætlun fyrir árin 2025--2029.
Virðulegi forseti. Ég veit ekki hvort hv. þingmaður heyrði ekki að ég er að reyna að finna leið til að jafna leikinn. Ég vona að hann skilji að það þýðir að ég er að leita að leið til að jafna leikinn, þegar hann heldur því fram (EÁ: Það er svæðisbundið.) hér að ég ætli ekkert að gera. (EÁ: Jafna hvaða leik? Þetta er … ) Þannig að sjómenn um allt land geti stundað strandveiðar og borið sambærilegan hlut frá borði frekar en eins og þetta er í dag. 48 dagar — það eru lögfestingar þarna undir en hv. þingmaður virðist ekki átta sig á (EÁ: Jú, jú.) að það er þannig og því breytir ráðherra ekki með reglugerð, bara svo því sé haldið til haga. Ég veit ekki hvort hv. þingmaður vill bara hafa einn pott eða hvernig þetta á allt saman að vera. Ég veit hann hefur talað fyrir því að þetta eigi allt saman að vera frjálst og það er hans skoðun og hann má hafa hana en ekki gera mér upp hér eitthvað sem er ekki rétt. Ég held að það sé bara allt í lagi að anda aðeins í kviðinn og átta sig á því að ef það er leið (Forseti hringir.) þá ætla ég að reyna að finna hana þannig að ástandið verði öðruvísi en verið hefur núna síðustu tvö árin.