154. löggjafarþing — 99. fundur,  19. apr. 2024.

fjármálaáætlun fyrir árin 2025--2029.

1035. mál
[13:55]
Horfa

matvælaráðherra (Bjarkey Gunnarsdóttir) (Vg):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurningarnar. Ég gleymdi að segja það hér áðan að ég þakka fyrir góðar óskir frá ykkur til mín í nýju starfi. Það kom illa við okkur þegar við fréttum það, þegar ég sat í atvinnuveganefnd, að brottkastið væri miklu meira en við kannski héldum, löndun fram hjá vigt og annað slíkt. Þetta er auðvitað það sem stofnanirnar okkar útfæra en ekki ráðherrann. En það er sem sagt lagt til að auka um tæpa 3 milljarða á tímabili áætlunarinnar heimildir til hafrannsókna og fiskveiðieftirlits þannig að það eru talsverðir fjármunir settir í þetta. Undir eru skilyrði til aukinnar verðmætasköpunar og sjálfbærni, vistkerfisnálgun, það er allt þarna undir. Við höfum skýrslu eftir Jóhann Sigurðsson, um haf- og fiskirannsóknir, sem var unnin í sambandi við verkefnið Auðlindin okkar, eins og við vitum sem þar vorum. Þar er auðvitað ýtt undir að það þurfi meiri peninga til að efla hafrannsóknir og við því er verið að reyna að bregðast hérna. Við teljum að það sé bara svo mikilvægt, ekki síst fyrir atvinnuvegi okkar, að við eigum þessar upplýsingar til, þessa þekkingu á hafinu og öllum þeim auðlindum sem við höfum til þess að vera með almennilega nýtingu og stjórnun á auðlindum í hafinu. Það er líka verið að leggja til að Fiskistofa geti uppfært og styrkt upplýsingakerfissvið. Við erum að leggja til aukið gagnsæi. Ég legg mikla áherslu á að gagnsæi verði mikið í ráðuneytinu, þar sem hægt er að rekja þessa virðiskeðju sjávarútvegs. Ég hyggst í því sambandi láta gera mælaborð um sjávarútveginn þar sem hægt verður að rekja sig niður á alla liði sem undir eru.