fjármálaáætlun fyrir árin 2025--2029.
Virðulegi forseti. Varðandi loftslagsáhrif í hafi þá er gert ráð fyrir því. Við erum með afskaplega góða skrifstofu sjálfbærni í matvælaráðuneytinu. Þar er það skilgreint markmið að skilgreind verndarsvæði í lögsögunni verði orðin 30% árið 2029. Það er verið að kortleggja svæðin og greina hvernig núverandi kerfi um stjórn fiskveiða hefur haft áhrif og hefur áhrif á líffræðilega fjölbreytni. Það er verið að móta tillögur um hvernig og hverjir skuli vinna að þessum skilgreiningum. Við erum einmitt að leggja áherslu á þessi loftslagsmál.
Varðandi spurninguna um veiðigjaldið þá svaraði ég því til áðan að ég legg ekki til breytingu á næsta ári vegna veiðigjaldanna. Það heldur í raun bara áfram eins og það er. Ég held ég hafi verið búin að svara þeim spurningum sem hv. þingmaður bar fram. (Gripið fram í.) Já, fiskeldið, með rannsóknir og annað slíkt. Það er verið að leggja til talsverða fjármuni til eftirlits og til vöktunar og annað slíkt. Væntanlega verða þar líka undir rannsóknir á afleiðingum þessa og hvaða áhrif breytt umhverfi mun hafa, (Forseti hringir.) hvort við fáum ekki örugglega betri umgengni varðandi þessi mál.