154. löggjafarþing — 99. fundur,  19. apr. 2024.

fjármálaáætlun fyrir árin 2025--2029.

1035. mál
[14:00]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V):

Frú forseti. Ég vil byrja á því að óska nýjum matvælaráðherra velfarnaðar í starfi og óska ráðherranum til hamingju með starfið sömuleiðis. Nú ætla ég samt að tala um mál hér sem er örugglega ekki þægilegasta málið sem hæstv. ráðherra fékk á borð til sín á fyrstu dögunum. Þannig er nefnilega mál með vexti að matvælaráðuneytið, ráðuneyti hæstv. ráðherra, hefur nýverið sent bréf til þingsins þar sem gagnrýnt er mjög harðlega og einbeitt hvernig þingið stóð að vinnu þegar búvörulögum var breytt. Við þekkjum auðvitað öll þessa sögu. Gerðar voru stórfelldar breytingar á málinu sem kom upphaflega úr matvælaráðuneytinu á milli 2 og 3. umræðu. Hagsmunaaðilar fengu ekki að tjá sig. Ráðuneytið fékk ekki að segja sitt álit á því hvernig þarna var farið með. Það er verið að tala um að þessi vinnubrögð stangist mögulega á við stjórnarskrá. Það er verið að tala um að lögin sem slík, eins og þau voru samþykkt á endanum, standist ekki EES-samninginn og við getum lengi talið áfram.

Ég er ekki að óska eftir einhverri umræðu við ráðherrann um efnisatriði laganna eða það hvort stórir aðilar eigi að vera undir samkeppnislögum þarna eða ekki heldur meira út frá vinnubrögðum þingsins og út frá bréfi matvælaráðuneytisins. Mig langar ofureinfaldlega að fá að vita, vegna þess að mér finnst að almenningur eigi fullan rétt á að vita það: Er hæstv. matvælaráðherra sammála því sem kemur fram í bréfi matvælaráðuneytisins? Er gagnrýni matvælaráðuneytisins á þingið, atvinnuveganefnd, meiri hlutann þar sérstaklega, á rökum reist? Getur hæstv. matvælaráðherra sagt okkur hver skoðun ráðherrans er á því? Er gagnrýnin byggð á rökum?