fjármálaáætlun fyrir árin 2025--2029.
Frú forseti. Ég ætla að leyfa mér að vera ósammála því að ekki sé full ástæða til að ræða þetta mál áfram. Ég get svo sem skilið það vel að hæstv. ráðherra fari eins og köttur í kringum heitan graut þegar þetta mál ber á góma því að annars vegar er hæstv. ráðherrann auðvitað hér sem þingmaður að mínu mati í talsverðum órétti í vinnu hér við lagasetningu í þinginu og hins vegar auðvitað sem ráðherra yfir ráðuneyti sem hefur verið að gagnrýna þessi sömu vinnubrögð harðlega. Það er ekki rétt, sem kemur hér fram hjá hæstv. ráðherra, að gagnrýni ráðuneytisins beinist ekki að vinnubrögðum þingsins, hún gerir það bara vissulega. Það er bent á að málið hafi tekið algjörum stakkaskiptum og farið þvert á upphaflegan tilgang sinn í lokaniðurstöðunni. Það er bent á að ekki hafi verið haft neitt samband eða samráð við ráðuneytið líkt og alkunna er að oft er gert þegar verið er að breyta lagafrumvarpi eða lögum, ekki síst þegar lögin koma upphaflega úr ráðuneytinu. Ég les það hins vegar út úr svari hæstv. ráðherra að ráðherrann sé í raun og veru ekki sammála því sem kemur fram í bréfi matvælaráðuneytisins, þó að ekki sé það sagt berum orðum hérna.
En einmitt út af því að vísað er í endurskoðunarákvæðin langar mig að spyrja (Forseti hringir.) hæstv. ráðherra í ljósi allrar gagnrýninnar sem hefur komið fram á þetta mál, enda ekki skrýtið því að þetta mun beinast gegn hagsmunum bænda og neytenda: (Forseti hringir.) Er ekki full ástæða til að fara betur yfir málið og jafnvel flytja nýtt mál á næsta þingvetri til að koma (Forseti hringir.) betra skikki á það sem ákveðið var hér einhvern veginn í skjóli nætur, liggur mér við að segja?
(Forseti (ÁLÞ): Forseti vill enn og aftur ítreka ræðutímann, að hv. þingmenn virði ræðutímann sem er ein mínúta í seinna skipti en ekki ein og hálf.)