154. löggjafarþing — 99. fundur,  19. apr. 2024.

fjármálaáætlun fyrir árin 2025--2029.

1035. mál
[14:10]
Horfa

matvælaráðherra (Bjarkey Gunnarsdóttir) (Vg):

Virðulegi forseti. Varðandi breytingarnar í fjármálaáætlun á útgjaldaramma þess málefnasviðs, þ.e. breytingar í kringum búvörusamningana, þá er það í samræmi við ákvæði samninganna sem voru gerðir 2016 og ég fór yfir í ræðu minni. En um leið vil ég segja að fjárhæðirnar sem eru tilgreindar í samningnum taka breytingum og fylgja verðlagi, vísitölu neysluverðs, við gerð fjárlaga. Þannig vindur því fram og er alveg í takti við samningana þegar þeir voru endurnýjaðir 2016. Fyrir utan það eru almennar aðhaldsráðstafanir á sviðinu eins og gengur og gerist hjá öllum eða flestum ráðuneytum. Það er því ekkert óeðlilegt í því sem kemur að búvörusamningunum, þetta er bara samkvæmt samningunum.

Ég er alveg sammála hv. þingmanni varðandi afkomuvanda bænda. Hann er alls ekki eitthvað sem við getum horft fram hjá. Ríkisstjórnin gerði auðvitað vel í desember og reiddi fram talsverðar fjárhæðir til þess einmitt að reyna að mæta þessum bráðavanda sem ákveðinn hluti greinarinnar, eins og við þekkjum, hefur búið við. Við þurfum að horfa á þennan vanda bæði til lengri og skemmri tíma í sjálfu sér. En það breytir ekki þessum tölum í lækkun varðandi búvörusamningana, það er bara vegna þessa svo því sé haldið til haga.

Varðandi hvalinn þá er það svo og ég veit að hv. þingmaður veit það, að ráðherra getur ekki tjáð sig um mál og umsóknir og annað slíkt sem er til efnislegrar meðferðar í ráðuneytinu. Ég mun bara greina frá því þegar að því kemur og ég hef fengið öll gögn. Ég mun reyna að vinna málið hratt og vel en ég tek ekki ákvörðun fyrr en ég hef allt það sem ég þarf (Forseti hringir.) til þess að taka ákvörðun og ég vona auðvitað að það gerist fljótlega.