154. löggjafarþing — 99. fundur,  19. apr. 2024.

fjármálaáætlun fyrir árin 2025--2029.

1035. mál
[14:12]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Frú forseti. Fyrst athugasemd: Það blasir nú eiginlega við að ríkisstjórnin er ekki að taka tillit til afkomuvanda bænda sem blasað hefur við um allnokkra hríð. En það sem ég vil spyrja hæstv. ráðherra aftur um varðandi hvalamálið snýst ekki um meðferð ráðherrans á fyrirliggjandi umsókn heldur um það hvort ráðherra telji sér heimilt að gefa ekki út leyfi til hvalveiða á grundvelli gildandi laga. Þetta snýst ekki um meðferð þessarar tilteknu umsagnar. Þetta er almenns eðlis. Ráðherra getur tjáð sig um það og svarað spurningunni: Telur ráðherra sér heimilt að gefa ekki út leyfi til hvalveiða á grundvelli gildandi laga?