fjármálaáætlun fyrir árin 2025--2029.
Frú forseti. Helstu deilumál og ósætti um fiskveiðistjórnarkerfið eru þau að kvótakerfið og úthlutun kvóta er lokað kerfi. Nýliðun er nánast ómöguleg og kvótinn erfist og helst innan fjölskyldna og safnast á fárra hendur. Stórútgerðir mala gull og verða of valdamiklar í samfélaginu og teygja arma sína of víða í viðskiptalífinu með fjárfestingum utan greinarinnar. Veiðigjöldin sem útgerðir greiða fyrir að fá að nýta sér þjóðarauðlindina eru allt of lág. Þjóðin fær ekki réttlátan hlut í arðinum. Eftirlit með umgengni um fiskveiðiauðlindina er of veikt. Heimildir Fiskistofu eru ekki nægar og lög óskýr og gölluð. Jafnræði skortir á milli þeirra sem treysta á fiskmarkaði til að kaupa fisk til vinnslu og hinna sem stunda bæði veiðar og vinnslu. Allt of lítill hluti afla sem veiddur er fer á fiskmarkað. Sjómenn sjá erlendar útgerðir selja afla sinn á hærra verði en þær íslensku. Svindl hefur verið upplýst víða þegar ísprósenta í körum er áætluð við hafnarvog og ósamræmi er á milli endurvigtunar afla í vinnslustöðvum og vigtunar á hafnarvog. Endurvigtunin sem er í höndum útgerðarinnar sjálfrar ræður niðurstöðu og þar með hlut og launum sjómanna. Þá er heimavigtun uppsjávarafla ónákvæm. Útgerðarmönnum er treyst fyrir því sjálfum að segja til um hve mikið af auðlindinni þeir nýta, hvort sem er með endurvigtun eða heimavigtun. Tækni sem nú þegar er um borð í bátum og skipum og á vinnslustöðvum og gefur nákvæmar upplýsingar um magn og þyngd afla er ekki nýtt til eftirlits. Brottkast er mikið. Eftirlitið hefur helst verið með smærri bátum en brottkastið er einnig mikið hjá þeim stóru þótt það sé ekki eins sýnilegt.
Hæstv. ríkisstjórn ætlaði að reyna að sætta sjónarmið, leita sátta við þjóðina, var sagt, um nýtingu auðlinda hennar. Af fyrri svörum hæstv. matvælaráðherra tel ég augljóst að meint áform ríkisstjórnarinnar voru blekking. Er það ekki svo?