fjármálaáætlun fyrir árin 2025--2029.
Virðulegi forseti. Við erum hér að fjalla um fjármálaáætlun og það sem í henni er og eins og ég hef sagt áður þá stendur ekki til að hækka auðlindagjaldið fyrir komandi vertíð. Ég get alveg tekið undir margt af því sem hv. þingmaður sagði varðandi eftirlit og annað slíkt, við þurfum að styrkja það. Það er verið að setja aukna fjármuni í bæði Hafrannsóknastofnun og til Fiskistofu til þess m.a. að fylgjast betur með, og ekki bara með smábátum heldur almennt. Okkur getur svo greint á um útfærsluna, hvort of lítið eða of mikið fari á markað og þar fram eftir götunum. En undirliggjandi í þessu er að í stóra frumvarpinu sem ég vonast til að geta komið fram með, þó að það verði ekki fyrr en næsta haust, er afskaplega margt sem ég held að við getum verið sammála um að sé gott. Við erum örugglega ekki sammála um allt sem þar er undir, en þar er sannarlega verið að taka utan um margt af því sem bæði ég og hv. þingmaður höfum gagnrýnt og höfum haft áhyggjur af. Ég ætla líka að segja að það sé ekkert verið að dekra hér við — alla vega er sú sem hér stendur ekki að dekra eitthvað sérstaklega við það sem kallað hefur verið auðvald eða útgerðarauðvald. Það hefur ekki alveg verið í mínu blóði fram til þessa. Regluverkið sem við erum með er sannarlega eins og það er og við þekkjum þessa vinnu alla sem fram hefur farið. Þetta tekur tíma. Það þarf að taka betur utan um þetta og ég vona að við náum að koma þessu máli hér inn þannig að við getum sammælst um þá þörf sem er á að breyta mjög mörgu hérna, hvort sem við náum saman um það allt eða ekki, og það verði til þess a.m.k. að þetta verði enn betra.