154. löggjafarþing — 99. fundur,  19. apr. 2024.

fjármálaáætlun fyrir árin 2025--2029.

1035. mál
[14:21]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf):

Virðulegur forseti. Eins og kom fram í umræðum áðan segist hæstv. ráðherra ætla að reyna; skýlir sér bak við lögin en segist samt ætla að reyna. Hún getur tekið byggðakvóta og sett í pottinn, hún getur beitt reglugerðarvaldi sínu og stækkað pottinn, heimilað fleiri daga til strandveiða. Hún getur meira að segja notað vísindalegar veiðar til að auka aflamark í strandveiðum. Spurningin er þessi: Hvað eiga strandveiðimenn að þurfa að bíða lengi eftir þessari tilraun hennar eða þessum vilja hennar, litla vilja hennar, til að fjölga dögum til strandveiða? Hvenær verður komin niðurstaða? Strandveiðarnar eru að fara að byrja. Það er 18. apríl og strandveiðar byrja í maí. Hversu lengi eiga strandveiðimenn að þurfa að bíða eftir því að ráðherra lýsi því yfir að hún ætli að sjá til þess að 48 dagar verði tryggðir? Verður það í lok ágúst, næsta haust, kannski fyrir jól? Strandveiðar voru stöðvaðar 11. júlí í fyrra, 21. júlí árið þar á undan. Það er alger óhæfa að strandveiðimenn um allt land fái ekki að nota 12 daga í mánuði, í fjóra mánuði á hverju ári. Það er algerlega ótækt. Það er vonandi að ráðherra geti lýst því yfir hvenær við fáum svar við þessu, um vilja hennar, hinn litla vilja hennar, til þess að tryggja 48 daga og hvenær það verður gert. Við ættum ekki að þurfa að bíða í allt sumar, er það, eða fram yfir verslunarmannahelgi? Það er mjög líklegt að ef ekkert verður að gert verði strandveiðar stöðvaðar fyrir mánaðamótin júní/júlí, líklega um mánaðamótin. Það væri gott að fá að heyra álit ráðherra á því.

Annað atriði sem mig langar að spyrja um og mun koma frekar að í seinni ræðu minni varðar það hvort hæstv. matvælaráðherra muni beita sér fyrir því að kerfi byggðakvóta verði endurskoðað, bæði sértæki byggðakvótinn og almenni, þannig að tryggt verði að afla sem byggðarlögin fá verði landað á viðkomandi stað og að vinnsla á viðkomandi stað fái í forgang, jafnvel 20% afslátt, við kaup á markaði á þeim afla sem kemur að landi.