154. löggjafarþing — 99. fundur,  19. apr. 2024.

fjármálaáætlun fyrir árin 2025--2029.

1035. mál
[14:23]
Horfa

matvælaráðherra (Bjarkey Gunnarsdóttir) (Vg):

Virðulegi forseti. Það er bara spurning hvort hv. þingmaður sæki um í ráðgjöf hjá Hafró eða eitthvað, hann veit miklu meira hvernig lagaumhverfið virkar, heyrist mér, en allir mínir ráðgjafar og sérfræðingar í ráðuneytinu. En það er eins og ég hef sagt, ég er búin að fá fjöldamargar tillögur um það hvernig hægt er að breyta kerfinu frá hinum ýmsu strandveiðisjómönnum. Þau eru ekkert öll einhuga um það hvaða leiðir sé best að fara. Það er ekki hægt að breyta dagafjölda í reglugerð. Það er ekki hægt. En hv. þingmaður heldur því statt og stöðugt fram. Það er bara ekki hægt. Ég ætla að leyfa mér að trúa þeim sérfræðingum sem ég hef, þau eru mörg og hafa unnið við þetta í fjöldamörg ár og meira að segja er strandveiðisjómaður í ráðuneytinu sem hefur verið á sjónum talsvert lengi. Ég ætla bara að leyfa mér að halda því fram að þetta fólk sé ekki svo skyni skroppið að það sé að segja mér það sem hv. þingmaður er hér að halda fram, að hér sé bara ýmsu hægt að breyta og gera. Sannarlega er það þannig að ráðherra getur gengið gegn ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar og ákveðið að kvótinn verði miklu hærri en Hafrannsóknastofnun leggur til. Ég get gert það, það er alveg rétt. En það er auðvitað bara spurning um það hvað ráðherrann vill gera. Ég hyggst fylgja ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar, bara svo því sé haldið til haga. Það kann mörgum að finnast mjög margt um það og ég er alveg tilbúin til þess að taka þau samtöl. En, virðulegi forseti, mér finnst hv. þingmaður vera að reyna að teygja hér umræðuna áfram og aftur á bak en er samt alltaf í sama farinu með það sem verið er að segja.

Varðandi byggðakvótann þá er ég búin að undirrita reglugerð um sértæka byggðakvótann en ég hef ekki fengið hitt í hendurnar og eins og með önnur mál sem ég er að fást við þá tek ég á þeim þegar ég fæ þau í hendurnar og gögnin með þeim.