fjármálaáætlun fyrir árin 2025--2029.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni spurninguna því að ég er sammála honum að því leyti til að það er svo mikilvægt að við gerum bragarbót á umgjörðinni í kringum eldið og lagareldið, ekki síst sjókvíaeldi. Það frumvarp sem hér liggur frammi er tilraun í þá átt að gera það og ég held að það sé gríðarlega mikilvægt. Það er ekki allt undir frekar en í mörgu öðru en frumvarpið tekur utan um stóran hluta af því sem við þurfum að gera og það er í raun ekkert án refsingar, ef við getum orðað það með þeim hætti, það sem frumvarpið kemur til með að breyta.
Þessi fjármálaáætlun gerir ráð fyrir því að undirstöður fiskeldisins séu verulega styrktar. Það er 200 millj. kr. aukning á fjármunum bæði til Hafrannsóknastofnunar og Matvælastofnunar til þess að auka eftirlit og fylgjast með. Ég er sammála hv. þingmanni í því, það er svo mikilvægt því að það má ekki gerast aftur það sem búið er að gerast og gerðist við þessar sleppingar. Við erum líka að tala um lúsina og aðra óáran sem hefur sótt á fiskinn. Þetta er bara undirstaða þess að þetta geti virkað að mínu mati. Ég er ekki, svo hv. þingmaður viti það, að fara að banna fiskeldi í sjó. Það er komin hér fram tillaga um það. Það er ekki á stefnuskránni. En frumvarpið tekur mjög vel utan um þessi málefni. Það þarf auðvitað að láta á það reyna hvort það gengur ekki vel eftir. Ég vona svo sannarlega að málið fái afgreiðslu í þinginu á þessu vori og nefndin fari mjög ítarlega yfir það og rýni af því að ég held að við viljum öll ná utan um þetta. Þetta er atvinnugrein sem hefur vaxið talsvert mikið. Hún er að vaxa upp á landi líka og kannski verður hún í úthafinu einhvern tímann, ég veit það ekki. En það sem er mikilvægt að leggja áherslu á er að við erum, samfara nýja frumvarpinu sem hér liggur fyrir þinginu, að auka eftirlit gríðarlega.